Persónuverndarstefna Thai Kitchen
PERSÓNUVERNDARSTEFNA THAI KITCHEN EHF.
ALMENNT
Persónuvernd þín skiptir Thai Kitchen ehf. (hér eftir vísað til sem félagið) miklu máli. Stefna þessi tekur til persónuupplýsinga hvort sem þeim er safnað og þær varðveittar með rafrænum hætti, á pappír eða með öðrum sambærilegum hætti. Stefnan tekur til skráningar, vörslu og vinnslu á persónuupplýsingum sem falla undir stefnuna. Stefnan er aðgengileg á heimasíðu félagsins og er viðskiptavinum einnig veittur kostur á að kynna sér stefnuna við pöntun á þjónustu.
I. PERSÓNUVERNDARLÖGGJÖF
Um meðferð persónuupplýsinga gilda lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018, (hér eftir vísað til sem pvl.) eins og þau eru á hverjum tíma, og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2016/679. (hér eftir vísað til sem pvr.) Taka pvl. og pvr. m.a. á vinnslu, vörslu og miðlun persónuupplýsinga.
II. ÁBYRGÐ
Félagið ber ábyrgð á skráningu persónuupplýsinga og meðferð þeirra upplýsinga í starfsemi sinni. Félagið er með aðsetur að Borgartúni 3. Hægt er að hafa samband við okkur með því að senda skriflega fyrirspurn á dgeirgunnarsson@gmail.com og með því að hringja í 788-2200.
III. SÖFNUN OG NOTKUN
Við söfnum upplýsingum um:
- nafn þitt, símanúmer og stundum netfang til að geta svarað fyrirspurnum og brugðist við óskum þínum, t.d. til að senda þér upplýsingar eða til að svara spurningum þínum og athugasemdum,
- nafn þitt, símanúmer, netfang ásamt kennitölu til að geta lokið við og uppfyllt kaup þín á þeirri þjónustu sem við bjóðum upp á eða höfum milligöngu um,
- nafn þitt, kennitölu, tegund, umfang og dagsetningu viðskipta til að geta uppfyllt skyldu okkar samkvæmt bókhaldslögum.
Þú getur skoðað og notað vefsvæði félagsins án þess að gefa upp nokkrar persónulegar upplýsingar. Hins vegar söfnum við upplýsingum sem vafri þinn sendir þegar þú nýtir þér þjónustu okkar, þ.e. gögn sem geta falið í sér upplýsingar eins og IP-tölu þína, tegund vafra, útgáfu vafra, síður þjónustunnar sem þú heimsækir, tíma og dagsetningu heimsóknar þinnar, þann tíma sem þú varðir á þessum síðum og önnur talnagögn.
Allar þær upplýsingar sem félagið safnar eru nýttar til þess að framkvæma og bæta þjónustu fyrirtækisins við viðskiptavini. Þannig söfnum við þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að efna samningssamband eða til að svara fyrirspurnum þínum.
IV. MIÐLUN
Við seljum aldrei persónuupplýsingar um þig. Við miðlum aldrei persónuupplýsingum til þriðja aðila án þess að samþykki þitt fyrir miðluninni liggi fyrir, nema þar sem okkur er það skylt samkvæmt lögum.
Okkur er heimilt að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila) sem er þjónustuveitandi, umboðsmaður eða verktaki okkar í þeim tilgangi að ljúka við verkefni eða veita þér þjónustu eða vöru sem þú hefur beðið um eða samþykkt. Okkur er einnig heimilt að deila upplýsingum með vinnsluaðilum þegar það er nauðsynlegt til að vernda brýna hagsmuni t.d. við innheimtu á vanskilakröfu. Við deilum mögulega upplýsingum, í tölfræðilegum tilgangi, með vinnsluaðilum sem vinna með okkur við gæða og markaðsstarf. Við afhendum vinnsluaðilunum einungis þær persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir þá í framangreindum tilgangi og gerum við þá vinnsluaðilasamning þar sem þeir undirgangast skyldu um að halda upplýsingum um þig öruggum og nota þær einungis í framangreindum tilgangi.
Þá er athygli þín vakin á að allt efni sem þú birtir eða deilir á samfélagsmiðlasíðum okkar eru opinberar upplýsingar. Athygli þín er vakin á að með því að tengja saman síðureikning þinn og samfélagsmiðlareikninginn þinn gefur þú okkur leyfi til að deila upplýsingum með veitanda samfélagsmiðlaþjónustunnar og notkun þeirra upplýsinga sem við deilum stjórnast af stefnu samfélagsmiðilsins um persónuvernd. Ef þú vilt ekki að persónuupplýsingum þínum sé deilt með öðrum notendum eða með veitanda samfélagsmiðlaþjónustunnar, skaltu ekki tengja samfélagsmiðlareikninginn þinn við síðureikninginn eða deila efni inn á samfélagsmiðla frá síðunni.
V. ÞRIÐJU AÐILAR
Persónuverndarstefnan nær ekki til upplýsinga eða vinnslu þriðju aðila en við höfum enga stjórn á né berum ábyrgð á notkun, birtingu eða öðrum verkum þeirra. Við hvetjum þig því til að kynna þér persónuverndarstefnu þriðju aðila, þ. á m. vefhýsingaraðilum þeirra síðna sem geta vísað á okkar, hugbúnaðarfyrirtækja á borð við Facebook, Apple, Google og Microsoft ásamt þeirri greiðsluþjónustu sem þú kýst að nota.
VI. VERNDUN
Félagið leggur mikla áherslu á að vernda allar persónuupplýsingar og hefur því yfir að skipa innra eftirlitskerfi sem á að tryggja að ávallt skulu gerðar viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir.
Við munum tilkynna þér án ótilhlýðilegrar tafar ef það kemur upp öryggisbrot er varðar persónuupplýsingarnar þínar sem hefur í för með sér mikla áhættu fyrir þig. Með öryggisbroti í framangreindum skilningi er átt við brot á öryggi sem leiðir til óviljandi eða ólögmætrar eyðingar persónuupplýsinga eða að þær glatist, breytist, verði birtar eða aðgangur veittur að þeim í leyfisleysi.
Athygli þín er þó vakin á því að þú berð ábyrgð á persónuupplýsingum, t.d. nafni, kennitölu og mynd, sem þú kýst að deila eða senda á almennum vettvangi t.d. í gegnum TripAdvisor, spjallrás eða Facebook síðu félagsins.
Við viljum einnig taka fram að gagnaflutningur á internetinu er aldrei fullkomlega öruggur. Þér er því bent á að láta okkur umsvifalaust vita ef þú telur hættu á að tilteknar upplýsingar sem þú hefur gefið okkur séu í hættu.
VII. VARÐVEISLA
Félagið reynir eftir fremsta megni að halda persónuupplýsingum um þig nákvæmum og áreiðanlegum og uppfærir þær eftir þörfum. Við varðveitum persónuupplýsingar um þig í sex mánuði frá lokum viðskipta, nema þú hafir með samþykki þínu veitt okkur heimild til að varðveita þær lengur eða ef okkur er það nauðsynlegt til að uppfylla lagaskyldu, t.d. vegna ákvæða skatta- og bókhaldslaga. Við munum fara yfir allar persónuupplýsingar um þig reglulega og meta hvort okkur sé heimilt að varðveita þær áfram.
VIII. RÉTTINDI ÞÍN
Þú hefur rétt á og getur óskað eftir eftirfarandi upplýsingum með því að senda skriflega fyrirspurn á dgeirgunnarsson@gmail.com:
Að fá að vita hvaða persónuupplýsingar eru skráðar um þig og hvernig þær eru tilkomnar og fá aðgang að persónuupplýsingunum.
Að fá upplýsingar um hvernig persónuupplýsingar um þig séu unnar.
Að persónuupplýsingar um þig séu uppfærðar og leiðréttar.
Að persónuupplýsingum um þig sé eytt, ef ekki er lengur málefnaleg ástæða til að varðveita þær.
Að andmæla og / eða takmarka hvernig persónuupplýsingar séu unnar.
Að fá afhendar persónuupplýsingar sem þú hefur látið okkur í té eða að þær séu sendar beint til annars aðila með þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi annarra setja.
Að afturkalla samþykki þitt til vinnslu þegar vinnsla byggist á þeirri heimild með sama hætti og þú gafst það eða með því að senda á okkur skriflega fyrirspurn.
Að fá upplýsingar um hvort fram fari sjálfvirk ákvarðanataka, þ.m.t. gerð persónusniðs og þau rök sem þar liggja að baki og einnig þýðingu og fyrirhugaðar afleiðingar slíkrar vinnslu.
Beiðni þín verður tekin til greina og þér afhentar upplýsingarnar (þegar það á við) innan hæfilegs tíma, þó með þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi annarra gera, þ.m.t. viðskiptaleyndarmál og hugverkaréttindi. Athygli er vakin á að innheimt er sérstakt ljósritunargjald ef farið er fram á fleira en eitt afrit. Þér verður tilkynnt og gefin skýring ef töf verður á afgreiðslu eða ef ekki er unnt að verði við beiðninni að fullu eigi síðar en mánuði frá móttöku hennar. Þú getur kvartað til Persónuverndar ef við neitum að afhenda þér ákveðnar upplýsingar.
IX. BREYTINGAR
Persónuverndarstefnan er endurskoðuð reglulega og kann því að taka breytingum. Þér er því ráðlagt að kynna þér persónuverndarstefnuna reglulega en breytingar á stefnunni öðlast gildi við birtingu hér.
Við tökum öllum athugasemdum um persónuverndarstefnuna fagnandi og hvetjum þig til að senda okkur fyrirspurn.